
Rafhlaðan hlaðin
Hlaða skal rafhlöðuna áður en höfuðtólið er tekið í notkun.
Þegar hleðslutæki er tekið úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Tengdu snúru hleðslutækisins við tengi höfuðtólsins. Rauða stöðuljósið verður
grænt þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
3 Hleðslutækið er fyrst tekið úr sambandi við höfuðtólið, síðan úr
rafmagnsinnstungunni.
Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að 8 klst. í tali eða tónlistarspilun eða 35 klst. í biðstöðu
þegar kveikt er á hávaðavörn (ANC). Til að auka biðstöðutímann skaltu slökkva á
hávaðavörn þegar höfuðtólið er ekki í notkun. Biðtíminn er allt að 240 klst. þegar slökkt
er á hávaðavörninni.
Eftir 15 mínútna hleðslu endist rafhlaðan í rúmlega 4 klst. og 30 mínútur í tali eða
tónlistarspilun.
Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna fresti og rauða
stöðuljósið blikkar.
Ef kveikt er á hávaðavörninni þegar slökkt er á höfuðtólinu og lítið hleðsla er á því heyrist
enginn tónn og rauða ljósið logar.
Hleðsla rafhlöðunnar könnuð
Ýttu á þegar höfuðtólið er tengt við farsímann. Ef stöðuljósið er grænt er rafhlaðan
nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega. Ef ljósið er
rautt skaltu hlaða rafhlöðuna.
4