
Höfuðtólið parað og tengt með NFC
Með NFC (Near Field Communication) er hægt að para og tengja höfuðtólið við samhæf
tæki á auðveldan hátt. Ef samhæfa tækið styður NFC skaltu kveikja á NFC í því og láta
NFC-svæði tækjanna snerta hvort annað. Það kviknar sjálfkrafa á höfuðtólinu og það
tengist við tækið. Einnig er hægt að aftengja höfuðtólið með NFC. Nánari upplýsingar
um NFC er að finna í notendahandbók tækisins.
Ef tækið styður ekki NFC skaltu para höfuðtólið handvirkt.