
Um höfuðtólið
Með Nokia Essence Bluetooth-stereóhöfuðtólinu geturðu svarað símtölum handfrjálst
og hlustað á tónlist hvar sem þú ert. Hávaðavörnin (ANC) gerir þér einnig kleift að nota
höfuðtólið í hávaðasömu umhverfi. Auðvelt er að para höfuðtólið við samhæfa síma.
Til athugunar: Yfirborð platna þessarar vöru inniheldur ekki nikkel. Ryðfrítt stál er
á yfirborði tækisins.
Viðvörun:
Þessi vara getur innihaldið smáa hluti. Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
Sumir hlutar vörunnar eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að vörunni. Ekki skal
geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt vörunni því
upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.
Lestu þessa notendahandbók vandlega áður en varan er tekin í notkun. Lestu einnig
notendahandbókina sem fylgir tækinu sem tengt er við vöruna.
Stuðning er að finna á www.nokia.com/support.